Færsluflokkur: Lífstíll

Formanni færð gjöf.

Á fundi Lionsklúbbs  Seyðisfjarðar kvaddi sér hljóðs siðameistari klúbbsins og færði Adolfi Guðmundssyni formanni Lionsklúbbsins gjöf. Málavextir eru þeir að þegar klúbbfélagar fréttu að Adolf hefði gefið kost á sér sem formaður LÍÚ tilkynnti Þorvaldur siðameistari að hann myndi þegar í stað hefja söfnun í kosningasjóð Adolfs.   Enda er það svo að  Adolf á sér bakhjarl í Lionsklúbbnum okkar.

IMG_3229Málið þróuðust hins vegar svo, að þegar aðrir, sem hugðust berjast við Adolf um formannsstólinn, fréttu af öflugum stuðningi Adolfs, féllu þeir frá framboði sínu.

Adolf varð því sjálfkjörinn, enda vel að embættinu kominn.

Þorvaldur færði honum hins vegar glaðning í kvöld. Það voru nokkrir hlutir, meðal annars; hreindýrshorn sem eru tákn Austurlands.

Þá fékk hann dúkku af verkamanni með hamar og evrur í poka, sem eru tákn um þá umræðu sem snertir hagsmuni atvinnulífisins af upptöku evru og inngöngu í ESB. Einnig voru í gjöfinni ferðatannbursti og ullarhosur, sem eflaust koma sér vel.

Með öllu þessu fylgja árnaðaróskir frá siðameistara og öllum klúbbnum Adolfi til handa.

Sjá myndir í myndaalbúmi. 

 

 


Jólatrésskemmtun.

Góðan dag.

jolatreHin árlega jólatrésskemmtun Lionsklúbbsins er fyrirhuguð laugardaginn 27. desember kl 15.00 - 17.00.

Undirbúningur er að hefjast og verða menn kvaddir til verka eins og venjulega.

Formaður skemmtinefndar.

   


Fundur fimmtudaginn 4. desember n.k.

Minni á fundinn á fimmtudaginn kemur. Þar verður eflaust fjallað um starfið í desember. Undirbúningur jólatrésskemmtunar m.a. með því að fara í "Múla-Lund" að sækja tré fyrir samkomuna og þá sem vilja kaupa tré af Lionsklúbbnum Múla. Þá verður eflaust fjallað um sölu á "Sólarkaffi" o.fl. sem viðkemur starfinu á næsta starfsári. Gera má ráð fyrir gamanmálum af vörum formanns og vonandi mætir einhver með innlegg á fundinn að heiman. Alltaf eitthvað gott í gogginn (þori ekki að segja kroppinn). Mætum öll hress og kát (nema ég, verð fyrir sunnan). Góða skemmtun.

kv.

Fjölmiðlaftr.


Tenging inn á vefsíðuna http://www.Lions.is

Klúbburinn óskaði eftir tengingu þessarar bloggsíðu inn á vefinn http://www.lions.is. Vefstjóri Lions síðunnar hefur góðfúslega orðið við þeirri ósk og kann kúbburinn honum miklar þakkir fyrir.

Með bestu kveðjum, 

LB fjölmiðlaftr. 


Myndir frá árshátíð, 2. apríl 2004.

Það eru komnar inn nokkrar myndir í myndaalbúm frá sameiginlegri árshátíð Lionsklúbbs Seyðisfjarðar og Lionsklúbbsins Múla.  Árshátíðin var haldin á Hótel Héraði þann 2. apríl 2004 og sjá má þar marga mæta Lionsfélaga.


Hversdagshetjur

Var að glugga í Lionsblað nr.250. Þar er m.a. fjallað um hversdaghetjur Lionsklúbba. Nágrannar okkar og vinir í Lionsklúbbnum Múla heiðruðu Höskuld Marínósson fyrir framúrskarandi árangur. Meðfylgjandi er klippa úr Lionsblaðinu fyrir þá sem vilja kynna sér málið nánar. Blaðið í heild má finna á www.lions.is 
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hvað er á döfinni hjá klúbbnum?

Lionsklúbbur Seyðisfjarðar heldur jólaball fyrir smáfólkið á staðnum. Þar koma jólasveinarnir úr Bjólfinum, syngja með börnunum, ganga í kring um jólatré, sem Lionsmenn sækja til félaga sinna í Lionsklúbbnum Múla og gefa svo litlu krílunum jólagjafir. Lions hefur séð um að útvega tónlistarmenn til að syngja og spila á píanó við þetta tækifæri og sömuleiðis hafa þeir (eða miklufrekar makar þeirra) bakað skúffukökur og pönsur og annað góðgæti til að hafa á boðstólum. Jólatrésskemmtunin hefur almennt mælst vel fyrir og er reynt eftir fremsta megni að láta hana lenda á laugardegi á milli jóla og nýárs.

Sólarkaffi. Lionsklúbburinn á Seyðisfirði sótti um og á einkaleyfi á heitinu sólarkaffi. Er sérstaklega flutt inn og brennt og malað kaffi frá Brasilíu fyrir kúbbinn og pakkað inn í sérhannaða kaffipakka sem klúbburinn hefur einkaleyfi á. Þessa kaffipakka hefur klúbburinn selt í hús undanfarin ár þegar sól tekur að hækka á lofti við góðar undirtektir bæjarbúa. Þá hafa fyrirtæki í bænum einnig verið dugleg við að kaupa kaffi af kúbbnum. 

Ýmis verkefni eru fyrirhuguð á nýja árinu og verður ritað meira um það síðar. Það er gaman og gefandi að vera í Lions. 

Fjölmiðlafulltrúinn. 


Klúbbfélagar

 

Nafn

Heima

Vinna

GSM

Netfang

 1

Adolf Guðmundsson

472-1339

472-1402

892-8199

gullberg@eldhorn.is

 2Andri Borgþórsson553-3767 569-1726 896-4741 
 3Árni Elísson 472-1556 569-1725 8980549 

 4

Birgir Hallvarðsson

 

 

 

 Heiðursfélagi

 5Brynjar Skúlason565-9429   868-4291 
 6

Bragi Blumenstein

697-6994

 

 

 

 7

Garðar Eymundsson

472-114

 

8632385

 

 8 Guðni Sigmundsson   8960909 
 9

Gunnar Sverrisson

472-1189

472-1247

894-4609

gunnarsv@svn.is

 10

Jóhann Grétar Einarsson

472-1110

472-1101

853-2783

johanngr@simnet.is

 11

Jón Guðmundsson

472-1197

896-0710

896-0710

 

 12

Jón Halldór Guðmundsson

472-1136

470-2102

895-1136

jonh@tmd.is

 13 Kristinn Valdimarsson   868-7563 
 14

Lárus Bjarnason

472-1369

470-2101

848-4065

larusbjarna@simnet.is

 15

Ómar Bogason

472-1144

472-1195

860-2121

omar@austurland.is

 16

Óla B. Magnúsdóttir

472-1217

470-2100

862-2990

olab@tmd.is

 17Ólafur Örn Pétursson 472-1106  861-7008 
 18

Rúnar S. Reynisson

472-1445

472-1406

854-7876

runarr@hsa.is

 19

Rúnar L. Sveinsson

472-1606

472-1743

 

 

 20

Sigurður Jónsson

472-1442

472-1771

892-5701

sigj@verkaust.is

 21

Sigurður Valdimarsson

861-7793

472-1111

861-7793

 

 22

Snorri Jónsson

472-1141

472-1336

864-4242

 

 23 Unnar I. Jósepsson472-1170  867-4428 
 24 Unnar Sveinlaugsson472-1790  845-0476 
 25

Vilbergur Sveinbjörnsson

472-1319

 

855-3319

 

 26

Vífill Friðþjófsson

472-1115

 

 

 

 27

Þorvaldur Jóhannsson

472-1293

472-1690

894-5493

ssa@ssa.is

 


Markmið Lionsklúbba

1

Að virkja og efla anda skilnings meðal þjóða heims.
 

2

Að efla megireglur heilbrigðs stjórnarfars og borgarlegra dyggða.
 

3

Að starfa af áhuga að aukinni velferð byggðarlagsins og á sviði félagsmála, menningar og almenns siðgæðis.
 

4

Að tengja klúbbana böndum vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
 

5

Að skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um öll málefni, sem almenning varðar, að því undanskildu að ekki séu rædd meðal klúbbfélaga málefni stjórnarflokka né heldur sértrúarhópa.
 

6

Að hvetja félagslynda menn og konur til að þjóna byggðarlagi sínu án persónulegs ávinnings og hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði, opinberri starfssemi og einkarekstri.
 

 

 

 


Lionsklúbbur Seyðisfjarðar

Á Lionsfundi í Öldutúni 2, Seyðisfirði, sem haldinn var í gær, var skorað á undirritaðan fjölmiðlafulltrúa klúbbsins að setja heimasíðu klúbbsins sem link inn á www.skf.is  Þar sem reynsla af notkun heimasíðna klúbbsins sem eru tvær talsins hefur ekki verið of góð og tízkan virðist nú vera sú að blogga var ákveðið á fundinum að opna bloggsíðu til að kynna kúbbinn og starsemi hans. Hér er sem sagt búið að verða við þeirri beiðni.

Notendanafn er eins og sést lionsklubbur-seydisfjardar.blog.is og mun félögum verða gefið upp lykilorð þannig að allir kúbbmeðlimir sem þess óska geta hér eftir tjáð sig á þessari bloggsíðu. 

Heimasíða á msn er  http://groups.msn.com/lionsklubburSeydisfjardar

Sjá einnig http://frontpage.simnet.is/larusbjarna

« Fyrri síða

Um bloggið

Lionsklúbbur Seyðisfjarðar

Bloggsíðan er notuð sem heimasíða Lionsklúbbs Seyðisfjarðar. Meginflokkur er vitanlega félagslíf en þar sem sá flokkur er ekki til í fellivallista var valinn flokkurinn lífstíll þar sem Lionsmennska er í sjálfu sér lífstíll.

Höfundur

Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar er einn af fjölda mörgum Lionsklúbbum á Íslandi sem hefur það markmið að þjóna öðrum. Leiðarljós hreyfingarinnar er á ensku: We Serve eða Við leggjum lið

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Inntaka.
  • Inntaka.
  • Inntaka. Nýir félagar og fl.
  • Móri kominn frá Spáni
  • Spekingar spjalla

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband