2.12.2009 | 14:16
Ókeypis blóðsykurmælingar í Samkaup/Strax laugardaginn 5. desember 2009.
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar í samstarfi við HSA stendur fyrir blóðsykurmælingum í Samkaup/Strax, Seyðisfirði, laugardaginn 5. desember á milli kl.14.30 og 16.00. Öllum er velkomið að láta mæla hjá sér blóðsykurinn. Sykursýki 2 er örtvaxandi heilbrigðisvandamál um allan heim og er ómeðhöndluð sykursýki hættulegur sjúkdómur sem m.a. getur skemmt taugar og æðakerfi með ófyrirséðum afleiðingum. Hins vegar er hægt að meðhöndla sykursýki 2 með réttu mataræði og þyngdarstjórnun ef hún uppgötvast snemma og sömuleiðis eru til lyf við mjög háum blóðsykri. Loks eru ýmsar lausnir til með insulingjöfum ef um mjög svæsin tilfelli sykursýki 2 er að ræða. Látið því ekki hjá líða að mæla blóðsykurinn. Þetta samstarf Lions og HSA hefur leitt til þess að uppgötvast hefur um sykursýki á byrjunarstigi hjá fólki og er það mikilvægt í baráttunni við sjúkdóminn.
Um bloggið
Lionsklúbbur Seyðisfjarðar
Tenglar
Mínir tenglar
- Lionsblaðið Tengill á Lionsblaðið
- Lionsklúbburinn Gliese í Kathmandu Tvíburaklúbbur Lionsklúbbs Seyðisfjarðar
- Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar Menningarbærinn Seyðisfjörður
- Heimasíða á frontpage Ekki verið uppfærð lengi
- Seyðisfjarðarkaupstaður Heimasíða Seyðisfjarðarkaupstaðar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég fór en fékk falleinkunn. 4,9!
Jón Halldór Guðmundsson, 8.12.2009 kl. 11:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.